Laus störf
  • Leikskoli_utbod

Deildarstjórar við leikskóla

18.5.2021

  • Önnur staðan er á yngstu deild skólans, Gili þar sem nemendur eru 1-2ja ára,
  • hin staðan er afleysingastaða í 1 ár frá 1. september 2021 og er á Grundum deild með nemendur 3-4ra ára. 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu skilyrði
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Störfin henta jafnt körlum sem konum. Umsækendur þurfa að geta hafið störf í ágúst og september.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til 25. maí 2021.

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður eða Guðbjörg í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Innleiðing á verkefninu Heilsueflandi leikskóli er í fullum gangi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. 

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is