Laus störf
  • 20170725-DJI_0629_1705058981691

Starfsfólk óskast í umönnun

19.4.2024

Félagsþjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsfólki á Ból, sem er heimili fatlaðs og langveiks ungs manns. Óskað er eftir starfsfólki í 50-100% starfshlutfall eftir samkomulagi. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.

  • Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfinu er kostur.
  • Viðkomandi þurfa að vera 20 ára og eldri.
  • Óskað er eftir einstaklingum sem eru ábyrgir og góðir í mannlegum samskiptum.

Á Bóli vinnur öflugur starfsmannahópur á sólahringsvöktum. Nýir starfsmenn fá góða þjálfun og bakvakt er til staðar. Vinnuaðstaða á Bóli er eins og best er á kosið.

Umsóknir eða fyrirspurnir sendist til:

Guðnýjar Hildar Magnúsdóttur, gudnyhildur@bolungarvik.is