Sumarstarf í áhaldahúsi
Tæknideild Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni í áhaldahúsi við afleysingar vegna sumarleyfa starfsmanna í áhaldahúsi
Tæknideild Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni í áhaldahús Tjarnarkamba 1 við afleysingar vegna sumarleyfa starfsmanna yfir tímabilið 17.05.2024-31.08.2024. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni: Afleysing núverandi starfsmanna, vinnuskóli, ýmis tilfallandi verkefni á vegum áhaldahúss ss. vatnsveitumál, fráveitumál, almenn umhirða bæjarlandssins, hellulögn, sláttur, tiltekt, aðstoð og afleysingar við ferðamannastaði eins og Ósvör og Bolafjall, aðstoð við viðburði og þess háttar.
Hæfniskröfur:
Starfsmenn þurfa að vera 25 ára og eldri.
Reynsla af verkstjórn og verkframkvæmdum er nauðsynleg.
Bílpróf skilyrði.
Vinnuvélapróf kostur.
Iðnmenntun kostur.
Krafist er stundvísi og jákvæðni.
Umsóknarfrestur: 02.05.2024
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt samningi Bolungarvíkurkaupstaðar og viðkomandi stéttafélags.
Starfshlutfall 100%
Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Bjarnason sími 450-7000 eða í netfangi
finnbogi@bolungarvik.is
Umsóknum skal skilað inn til Finnboga Bjarnasonar á netfangið finnbogi@bolungarvik.is