Viðburðir

  • Bjartmar Guðlaugsson
  • 1. apríl 2017, 21:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 2.500 kr.

Bjartmar í félagsheimilinu

Bjartmar Guðlaugsson verður með tónleika í Félagsheimili Bolungarvíkur laugardaginn 1. apríl. 

 

Bjartmar  er flestum að góðu kunnur fyrir tónlist sína en hann hefur samið ógrynni af þekktum lögum sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi. Hann mun flytja öll sín bestu lög og verður að sjálfsögðu með lag þjóðarinnar, Þannig týnist tíminn, með í farteskinu. 

Að loknum tónleikum, eða í kringum miðnættið mun Danstríó Vestfjarða stíga á sviðið og spila góða tónlist fram á nótt. 

Húsið opnar kl 21:00 og er miðaverð kr 2.500.