Viðburðir

  • Einarshusid
  • 1. apríl 2017, 11:30 - 21:00, Einarshús í Bolungarvík

Fjölskylduhátíð og sumaropnun Einarshússins

Formleg sumaropnun Einarshússins verður þann 1. apríl.

Húsið opnar kl 11:30 og verður opið til kl 21:00, eins og verður framvegis í sumar.

Hápunktur dagsins verður á milli 15:00-17:00 þar sem hr. Níels og Tóti trúður munu mæta og gleðja börnin. Snuddutré vestfjarða verður vígt kl 16:00 með formlegum hætti og hinn eini sanni Bjartmar Guðlaugsson mun taka lagið. 

Síðar um kvöldið, eða kl. 22:00, mun Bjartmar svo stíga á stóra sviðið í Félagsheimilinu og halda tónleika eins og honum einum er lagið. 

Kynntur verður matseðill Einarshúss með formlegum hætti og gefst gestum að sjálfsögðu kostur á að panta sér mat af matseðli allan daginn. Ýmsar veitingar verða að auki í boði fyrir gesti. 

Veisluþjónusta Einarshúss ætlar að bjóða fram framúrskarandi veisluþjónustu og matsölu allt árið um kring. Engin veisla of stór og engin of lítil. Við getum boðið þér þína veislu bæði í Einarshúsi, Félagsheimilinu í Bolungarvík og svo er minnsta málið að koma með veisluna til þín. 

Fyrirtækjaþjónusta verður í boði, m.a. með þeim hætti að bjóða fyrirtækjum áskrift í heimilismat, sem og af matseðli, í hádeginu alla virka daga.