Viðburðir

  • Hlaupahátíð á Vestfjörðum
  • 14. júlí 2017 - 16. júlí 2017, Bolungarvík

Hlaupahátíð á Vestfjörðum

Hlaupahátíð á Vestfjörðum fer fram 14.-16. júlí 2017.

Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2017 fer fram eins og alltaf þriðju helgina í júlí sem verður 14.-16. júlí 2017. 

Dagskráin verður með svipuðu móti og undanfarin ár og hvetjum við keppendur til að taka helgina frá og mæta vestur og eiga frábæra daga hér þar sem allir í fjölskyldunni geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Skráning er á hlaupahatid.is.

Dagskrá Hlaupahátíðarinnar 2017

Föstudagur 14. júlí

  • Kl. 16:00 Sjósund 1500 m (2000 kr)
  • Kl. 16:00 Sjósund 500 m (2000 kr)
  • Kl. 20:00 Arnarneshlaup 21 km (3500 kr)
  • Kl. 20:30 Arnarneshlaup 10 km (2500 kr)
  • kl. 22.15 Verðlaunaafhending á Silfurtorgi fyrir Arnarneshlaup

Laugardagur 15. júlí

  • Kl. 10.00 Fjallahjólreiðar 55 km (5000 kr)
  • Kl. 10.15 Skemmtihjólreiðar 8 km (500 kr)
  • Kl. 11.30 Skemmtiskokk á Þingeyri, 2 og 4 km (500 kr)

Útijóga, vöfflubakstur og fleira skemmtilegt við sundlaugina á Þingeyri

Athugið að tímasetning á skemmtihjólreiðum getur breyst

Sunnudagur 16. júlí

  • Kl. 08:00 Tvöföld Vesturgata 45 km (6000 kr)
  • Kl. 11:00 Heil Vesturgata 24 km (6000 kr)
  • Kl. 12:45 Hálf Vesturgata 10 km (4000 kr)

Þríþraut samanstendur af 500 m sjósundi, 55 km fjalahjólreiðum og 24 km Vesturgata (10000 kr)

Tilgreindir tímar eru rástímar. Allar nánari upplýsingar um mætingu og rútuferðir er að finna inni á vefsíðu hverrar greinar fyrir sig.