Viðburðir

  • Kk
  • 2. febrúar 2018, 20:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 3.000 kr.

Kvöld með KK

Kristján Kristjánsson eða KK mun halda tónleika í Félagsheimili Bolungarvíkur föstudaginn 2. febrúar sem hefjast kl 21:00. 

Húsið opnar kl 20:00. KK verður einn með gítarinn og mun fara yfir ferilinn og segja sögur í bland við öll flottu lögin. 

Það er alveg ljóst að þetta er viðburður sem mun fylla FHB og því verður forsala í FHB frá kl. 17-19 sama dag. 

Miðaverð 3.000 kr.