Viðburðir

  • Ruddabolti
  • 18. ágúst 2017, 9:00, Ísafjörður

Setning menntaskólans

Menntaskólinn á Ísafirði verður settur kl. 9:00 föstudaginn 18. ágúst 2017.

Dagskrá skólasetningardags er sem hér segir:

08:00-09:00 
Nemendur geta nálgast stundatöflur og bókalista hjá ritara.

09:00
Skólasetning á sal skólans.

09:30
Í framhaldi af skólasetningu verður kennd svokölluð hraðstundatafla þar sem nemendur hitta kennara sína í hverju fagi í 10 mínútur.

11:30
Nýnemakynning í stofu 17 (fyrirlestrarsal) þegar hraðtöflunni lýkur.