Viðburðir

  • Þorrablót
  • 21. janúar 2017, 20:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 3.500

Þorrablót hjóna og sambúðarfólks

Árlega er haldið þorrablót hjóna og sambúðarfólks sem konur með lögheimili í Bolungarvík standa að. 

Á blótinu reiða trogfélagar fram sinn eigin þorramat og drukk og sýndir eru leikþættir, samdir og leiknir af nefnd sem konurnar velja árlega til að standa fyrir blótinu.

Félagsheimili Bolungarvíkur opnar kl. 19:30 og borðhald byrjar kl. 20:00. Halli og Þórunn leika fyrir dansi að loknu borðhaldi og skemmtun. 

Tekið er á móti trogum milli kl. 12:00 og 13:00.

Ætlast er til að konur mæti í upphlut eða peysufötum og karlar í hátíðarbúningi eða dökkum jakkafötum með hálstau.

Þorrablótið er haldið fyrsta laugardag í þorra en þorri hefst með bóndadegi sem árið 2017 er föstudagurinn 20. janúar.

Þorrablótið 2017 er því haldið laugardaginn 21. janúar.

Miðaverð er 3.500 kr.