Fréttir
  • Sjófarendur á Heiðrúnu II

50 ára minning sjófarenda á Heiðrúnu II

Sunnudagsmorgunninn þann 4. febrúar 1968, um kl. 10:00 fyrir hádegi, fór frá Brimbrjótnum í Bolungarvík Heiðrún II. Óveður var þá þegar skollið á, og átti að bjarga skipinu með því að sigla því til öruggrar hafnar á Ísafirði, en við Brimbrjótinn var skipið í hættu.

Ferðin gekk vel til móts við Hnífsdal, en bilana hafði gætt í radar, dýptarmælum og talstöð. Fyrir utan Hnífsdal varð radarinn óvirkur og komst ekki í lag eftir það. Var skipinu því siglt í var undir Snæfjallaströnd. Ofsaveður var þá þegar komið á, sem enn átti eftir að versna. Skömmu eftir miðnætti aðfaranótt mánudagsins 5. febrúar heyrðist síðast til skipsins, og fullvíst má telja að Heiðrún II hafi farist um það leyti, um 2,7 sjómílur undan Vébjarnarnúpi.

Heiðrún II var smíðuð árið 1963 á Akranesi og var 150 tonna eikarskip með 470 hestafla Krumhout vél. Skipið var í eigu Einars Guðfinnssonar í Bolungarvík og var talið traust og gott sjóskip. Skipið var áður gert út frá Sandgerði undir nafninu Páll Pálsson GK 360. 

Með skipu fórust sex menn:

  • Rögnvaldur Sigurjónsson, 52 ára, skipstjóri
  • Ragnar, 18 ára sonur Rögnvalds
  • Sigurjón, 17 ára sonur Rögnvalds
  • Páll Ísleifur Vilhjálmsson, 31 árs, vélstjóri
  • Kjartan Halldór Kjartansson, 23 ára
  • Sigurður Sigurðsson, 17 ára 

Blessuð sé minning þeirra. 
 
Minningarkaffi fer fram þann 4. febrúar 2018 kl. 15:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.