Fréttir
  • Bolungarvík - undir Traðarhyrnu

Auglýsing um styrki

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki samkvæmt 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

Byggðasamlaginu er heimilt að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.  

Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 20. október 2017 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilisveitarfélags, umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu. 

  • Félagsþjónustan við Djúp,  Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími 450-7000/ 450-5900 www.bolungarvik.is / www.sudavik.is
  • Fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími 450-8000  www.isafjordur.is.
  • Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps,  Höfðagötu 3, 510 Hólavík, sími 451-3510/ 434-7880.  www.strandabyggd.is / www.reykholar.is.
  • Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandarsýslu, Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður, sími 450 – 2300/ 456-2539 www.vesturbyggd.is / www.talknafjordur.is.