Fréttir
  • Fiskeldi í Arnarfirði

Fiskeldi fari af stað og auðlindagjald til sveitarfélaga

Bæjarráð Bolungarvíkur leggur áherslu á mikilvægi þess að fiskeldi í Ísafjarðardjúpi hefjist sem fyrst og núverandi áhættumat verði endurmetið við fyrsta tækifæri.

Bæjarráð Bolungarvíkur leggur jafnframt áherslu á að í fiskeldislögum og í lögum um gjaldtöku af fiskeldi komi skýrt fram að auðlindagjöld hverskonar af fiskeldi renni til uppbyggingar í sveitarfélögum á Vestfjörðum.

Bæjarstjóra var falið að vinna með öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum að umsögn um áðurnefnd frumvörp.