Fréttir
  • Rollur

Fjallskilaseðill 2022

Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.

Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.

Réttað er í Minni-Hlíð, réttarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson, og í lögrétt á Sandi í Syðridal, réttarstjóri þar er Arnþór Jónsson.

Fjáreigendur athugið, að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 25. september 2022.

Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.

Útréttir annast Arnþór Jónsson.

Fjáreigendur og lögbýli leggi til smala samkvæmt eftirfarandi:

Syðridalur, Hólsland og Ósland, smalar alls 23 smalar, leitarstjóri er Arnþór Jónsson

Fjáreigendur/lögbýli  Fjöldi smala 
Guðmundur Bjarni Jónsson  1
Guðmundur Ragnarsson  1
Hanhóll 1
Jón Guðni Guðmundsson  2
Jóhannes Már Jónsson  2
Margrét Ólafsdóttir  7
Miðdalur  1
Sigmundur Þorkelsson  2
Sunna Reyr Sigurjóndóttir  2
Þórir Bjartmar Harðarsson  4
Samtals fjöldi  23


Skálavík, Stigahlíð, Hlíðardalur og Tungudalur, smalar alls 26 menn, Stigahlíð, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson

Fjáreigendur/lögbýli  Fjöldi smala
Albert Guðmundsson  2
Elvar Stefánsson  2
Finnbogi Bernódusson  2
Hálfdán Sveinbjörnsson 1
 Kristján Jónsson  1
Sigurgeir Jóhannsson 10
Sigurjón Sveinsson 3
Svala Björk Einarsdóttir 5
Sigurður Hálfdánsson 1
Samtals fjöldi
27