Fréttir
  • Bolungarvík, mynd Haukur Sigurðsson

Fögur er Víkin

Hluti átaksins er fyrirhuguð hópavinna sjálfboðaliða við upprætingu kerfils í bæjarlandinu

  • miðvikudaginn 26. júní kl. 17-19,
  • fimmtudaginn 27. júní kl. 17-19 og
  • föstudaginn 28. júní kl. 17-19.

Mæting við sundlaug og í lokin á föstudaginn verða grillaðar pylsur í boði bæjarins.

Upprifinn kerfil má skilja eftir í böndum eða pokum á gangstéttum og starfsfólk bæjarins mun fjarlægja hann.

Starfmenn Bolungarvíkurkaupstaðar hafa tekið höndum saman um að gera bæinn eins snyrtilegan og mögulegt er og birt myndir á vefnum undir millumerkinu #fogurervikin.

Sveitafélagið hvetur bæjarbúa að gera slíkt hið sama og líta í kringum sig eftir veturinn, snyrta og laga það sem betur má fara.

Gaman væri ef bæjarbúar gætu tekið fyrir-og-eftir-mynd og sett innlegg á samfélagsmiðla undir myllumerkinu - #fogurervikin - eða bara fallega mynd af bænum nú eða húsinu sínu.