Fréttir
  • Topaz

Frístundaleiðbeinandi

Óskað er eftir hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.

Reynsla af félagsstarfi og/eða starfi með unglingum er æskileg.

Félagsmiðstöðin Tópaz er opin þrjú kvöld í viku og myndi frístundaleiðbeinandi hafa viðveru tvö kvöld í viku auk tilfallandi viðveru vegna viðburða í starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.

Nánari upplýsingar gefur Helgi Hjálmtýsson, markaðs- og kynningarfulltrúi, á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar og í síma 8918477.

Umsóknum skal skila í síðasta lagi 30. ágúst 2021 á bæjarskrifstofu Bolungarvíkur, merkt „Frístundaleiðbeinandi“ eða á netfangið helgi@bolungarvik.is.