Fréttir
  • Íþróttahúsið Árbær

Frístundarúta milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar

Ferðirnar eru eingöngu ætlaðar börnum og unglingum frá Bolungarvík og Ísafirði vegna þátttöku þeirra í skipulögðu tómstundastarfi en eru ekki ætlaðar almenningi.

Stoppistöðvar eru við Íþróttamiðstöðina Árbæ í Bolungarvík, Íþróttahúsið á Torfnesi á Ísafirði og aðal stoppistöð strætó á Ísafirði í Pollgötu.

Fargjald verður ekki innheimt að svo stöddu en frístundarútan er tilraunaverkefni sem mun standa út maí 2017 og verður verkefnið þá endurskoðað fyrir næsta vetur. Uppsetning stundaskráa í frístundastarfi í Bolungarvík og á Ísafirði verður þá einnig endurskoðuð með hliðsjón af ferðum frístundarútu. 

Markmiðið með frístundarútu er að bæta þjónustu við börn og unglinga sem stunda íþróttir og aðrar tómstundir í Bolungarvík og á Ísafirði og minnka álag á foreldra og aðstandendur. Ef vel gengur verður frístundarútan afar hagkvæm frá samfélagslegu sjónarmiði, sparar tíma og óþægindi meðal iðkanda og aðstandenda þeirra og minnkar akstur verulega, segir Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar.

Vestfirskar ævintýraferðir ehf. annast aksturinn samkvæmt samningi en Bolungarvíkurkaupstaður og Ísafjarðarbær standa að verkefninu.