Fréttir
  • Helga Guðmundsdóttir

Helga Guðmundsdóttir 103 ára

Hún er elsti íbúi Vestfjarða og enginn Bolvíkingur hefur náð jafn háum aldri og Helga að því best er vitað.

Helga var eins og hálfs árs þegar fullveldislögin öðluðust gildi og hún hefur tekið þátt í öllum forsetakosningum sem farið hafa fram á Íslandi.

Helga hefur upplifað spænsku veikina, náð sér af berklum, upplifað kreppuna miklu, tvær heimsstyrjaldir, kalda stríðið, kvótalausar veiðar, Hrunið og náð sér af Covid-19.

Í tilefni dagsins fékk Helga blómvönd frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Myndina tók Kristín Helga Hagbarðsdóttir.