Fréttir
  • Skjaldarmerki Bolungarvíkur

Hugmyndir um skerðingu á framlögum Jöfnunarsjóðs

Þær hugmyndir sem fram eru komnar eru til þess fallnar að skerða þjónustu við íbúa í Bolungarvík og á Vestfjörðum öllum. Tillögurnar leggjast afar illa á fámenn sveitarfélög sem reiða sig á framlög Jöfnunarsjóðs til að jafna að hluta þann gríðarlega aðstöðumun sem er milli sveitarfélaga á Vestfjörðum og t.d. á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kemur í minnisblaðinu að fyrirhuguð skerðing leggist afar misjafnt á sveitarfélög um landið og ljóst er að íbúar á Vestfjörðum munu bera hlutfallslega mestu skerðinguna. Þannig skerðast fjárframlög Jöfnunarsjóðs hundrað sinnum meira á Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu.

Áhrif af skertum tekjum Jöfnunarsjóðs á íbúa sveitarfélaga (kr. á hvern íbúa)

Bæjarráð Bolungarvíkur mótmælir þessum fyrirhuguðu hugmyndum um skerðingu tekna til Jöfnunarsjóðs harðlega og beinir því til stjórnvalda að leita annarra leiða til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum.

Sveitarfélög á Vestfjörðum skorast ekki undan þeirri ábyrgð sem felst í ábyrgum rekstri sveitarfélaga eða þátttöku í kostnaði við að þjónusta íbúa þessa lands. En þær hugmyndir sem fram eru komnar um fyrirhugaða skerðingu eru úr öllum takti við sanngjarna úthlutun fjármuna úr sameiginlegum sjóðum. Það geta varla verið hugmyndir ríkisins að íbúar á Vestfjörðum taki á sig hundrað sinnum meiri skerðingu en önnur sveitarfélög.

Ef ríkisvaldið hefur raunverulega áhyggjur af horfum í efnahagsmálum þá er lausnin bæði einföld og fyrirsjáanleg. Á Vestfjörðum og Austfjörðum hefur verið unnið að atvinnuuppbyggingu sem er fyllilega tilbúin til að fylla í gatið sem komandi niðursveifla í íslensku efnahagslífi mun skilja eftir sig. Atvinnuuppbygging sem mun í fyllingu tímans taka fram úr íslenskum sjávarútvegi að stærð og umfangi. Atvinnuuppbygging sem að fullu verður fjármögnuð án aðkomu ríkisins á nokkurn hátt. Atvinnuuppbygging sem mun að stærstum hluta byggja upp atvinnu og umsvif fjarri höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuuppbygging sem mun greiða sérstakt auðlindagjald til samfélagsins.

Ef Ísland vill fá meira frá Vestfjörðum, þá stendur aukið fiskeldi til boða.