Fréttir
  • Markaðshelgin viðburðir

Viðburðastyrkir um markaðshelgina

Bolungarvíkurkaupstaður býður tvo 50.000 kr. styrki til einstaklinga eða hópa fyrir framkvæmd á viðburði um markaðshelgina.

Skilyrði er að verkefnin séu framkvæmd af styrkþegum sjálfum og að þau séu í þágu íbúa og gesta markaðshelgarinnar.

Styrkirnir eru hugsaðir til að greiða fyrir kostnað við framkvæmd viðburðar og eru greiddir eftir að viðburðir hafa farið fram.

Umsóknir óskast sendar á netfangið helgi@bolungarvik.is fyrir hádegi 28. júní 2020. Fram þarf að koma:

  • Lýsing á fyrirhuguðu verkefni
  • Útfærsla á framkvæmd (hvar, hvenær og fyrir hverja verkefnið er hugsað)
  • Gróf kostnaðaráætlun
  • Upphæð styrkumsóknar