Fréttir
  • Vinnuskólinn

Vinnuskóli Bolungarvíkur 2017

Vinnuskólinn er fyrir unglinga með lögheimili í Bolungarvík (eða annað foreldri með lögheimili í Bolungarvík). 

Boðið er uppá vinnu sem hér segir:

  •  Unglingar í 8 bekk – 4 tímar á dag í 4 vikur
  • Unglingar í 9 bekk – 4 tímar á dag í 5 vikur
  • Unglingar í 10 bekk – 6 tímar á dag í 5 vikur
  • Unglingar í 1 bekk – 6 tímar á dag í 5 vikur

 Unnið verður frá kl. 8 alla virka daga, unglingar í 8 og 9 bekk hætta kl 12 en unglingar í 10 og 1 bekk hætta  kl 14.  Kaffitímar eru kl. 10 í 15 mínútur og matartími kl. 12 í 30 mínútur.  Ætlast er til að unglingarnir komi með nesti í kaffi og matartíma. 

Vinnuskólinn fær úthlutað verkefnum frá áhaldahúsi Bolungarvíkurkaupstaðar.  Vinnuskólinn getur einnig tekið að sér önnur verkefni í bæjarfélaginu eftir sérstöku samkomulagi þar um. 

Umsóknum um vinnuskólann þarf að skila á bæjarskrifstofuna fyrir 15. maí

Unglingum í vinnuskólanum er gert að vinna samviskusamlega þau verk sem þeim eru falin og sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans, vinnufélaga og bæjarbúa. Klæðnaður þarf að vera í samræmi við veður og vinnuaðstæður.  Reykingar eru ekki leyfðar. Farsímar eru ekki leyfðir. Fari unglingur ekki að tilmælum leiðbeinanda eða sætti sig ekki við þær starfs- og umgenginsreglur sem gilda í Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig. Beri það ekki árangur er hann sendur heim launalaus.