Fréttir
  • Lýðháskólinn á Flateyri

Auglýst eftir umsækjendum um nám við Lýðháskólann á Flateyri

Um plássið geta allir þeir einstaklingar sótt sem náð hafa 18 ára aldri í september á þessu ári og uppfylla eitthvert af eftirfarandi skilyrðum:

  • Einstaklingur búsettur í Bolungarvík
  • Einstaklingur sem telst brottfluttur Bolvíkingur 
  • Einstaklingur er barn eða barnabarn íbúa Bolvíkinga eða brottfluttra Bolvíkinga

Sótt er um skólaplássið á  vef skólans.  

Þegar sótt er um er nauðsynlegt að í dálkinum Er fleira sem þú vilt að komi fram? sé tekið fram að umsóknin vísar á skólapláss auglýst af Bolungarvík. Einnig skulu tengsl umsækjanda við Bolungarvík tekin fram. 

Ákvörðun um val á umsækjendum verður í höndum Lýðháskólans á Flateyri. 

Ef þörf er á nánari upplýsingum um umsóknina eða annað, er velkomið að hafa samband við Helenu Jónsdóttur, skólastjóra Lýðháskólans á Flateyri í síma 661 7808 eða með tölvupósti á skolastjori@lydflat.is.

Nánari upplýsingar um Lýðháskólann á Flateyri, námið og annað er að finna á vef skólans www.lydflat.is.