Samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu, stofngjald holræsa og byggingarleyfis-afgreiðslu- og þjónustugjöld
Um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu, stofngjald holræsa og byggingarleyfisafgreiðslu- og þjónustugjöld í Bolungarvíkurkaupstað.
1. gr.
Almenn heimild
Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum við eldri byggingar, hvort sem eru á eignar- eða leigulóðum í Bolungarvíkurkaupstað skal greiða gatnagerðargjald til sveitarfélagsins samkvæmt samþykkt þessari. Um gatnagerðargjald fer að öðru leyti eftir lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatnagerðargjald nr. 543/1996. Einnig skal greiða vegna sömu framkvæmda heimæðargjald vatnsveitu, tengigjald holræsa og byggingarleyfisgjald. Gjöld vegna þessa fara eftir viðkomandi gjaldskrám
2. gr.
Ráðstöfun gjalda
Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja, s.s. til greiðslu kostnaðar við undirbyggingu götu með tilheyrandi lögnum þ.m.t. vegna götulýsingar, við lagningu bundins slitlags og gangstétta, gerð umferðareyja, gangstíga og opinna svæða.
Tekjum sveitarfélagsins vegna framkvæmdaleyfa og byggingarleyfa og af afgreiðslu- og þjónustugjöldum skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins við þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.
Tengi- og heimæðargjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.
3. gr.
Gjaldstofn gatnagerðargjalds.
Bolungarvíkurkaupstaður innheimtir gatnagerðargjald af fasteignum í sveitarfélaginu. Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð sem ákveðinn er með eftirfarandi hætti.
Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.
Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:
- Þegar Bolungarvíkurkaupstaður úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
- Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.
- Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkunin nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi var veitt fyrir niðurrifi byggingar. Að örðum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald.
Gatnagerðargjald er ákveðið hlutfall byggingarkostnaðar fermetra í vísitöluhúsi eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987, um vísitölu byggingarkostnaðar, sem í janúar 2013 var kr. 181.006 kr/m2.
Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum uppdráttum og ÍST 50.
Af hverjum fermetra (m²) húss, sem byggja má á nýrri eða óbyggðri lóð, skv. samþykktu deiliskipulagi, greiðist gatnagerðargjald eftir húsgerðum. Fermetrafjöldinn (m²), sem lagður er til grundvallar við útreikning á gatnagerðargjaldinu er margfeldið af lóðarstærð og nýtingarhlutfalli lóðar eins og viðkomandi deiliskipulag segir fyrir um. Sýni deiliskipulag að nýtingarhlutfall lóðar megi vera á ákveðnu bili þ.e. að gefið sé upp lágmarks- og hámarksnýtingarhlutfall þá skal meðaltal hámarks- og lágmarksnýtingarhlutfalls lagt til grundvallar við útreikning á gatnagerðargjaldinu.
Af viðbyggingum við eldri hús þar sem deiliskipulag er ekki til staðar eru fermetrar (m²) viðbyggingar lagðir til grundvallar við útreikning á gatnagerðargjaldinu.
4. gr.
Útreikningur gatnagerðargjalds.
Af hverjum fermetra (m²) húss, greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Þessi byggingakostnaður er í janúar 2013 181.006. kr./m2, og byggingarvísitala 2010, 115,8 stig í janúar 2013.
| Einbýlishús | 9,0% | 16.290 | kr./m² |
| Rað- og sambýlishús, mest 4 íbúðir | 6,5% | 11.765 | kr./m² |
| Fjölbýlishús, 5 íbúðir eða fleiri | 4,5% | 8.145 | kr./m² |
| Verslunar- og skrifstofuhúsnæði | 5,5% | 9.955 | kr./m² |
| Iðnaðar- og annað atvinnuhúsnæði | 3,5% | 6.335 | kr./m² |
| Bifreiðageymslur, áður byggð hverfi | 5,5% | 9.955 | kr./m² |
| Skólamannvirki | 6,0% | 10.860 | kr./m² |
| Sólskálar | 4,5% | 8.145 | kr./m² |
| Frístundahús | 3,0% | 5.430 | kr./m² |
Til flokks d. „verslunar og skrifstofuhúsnæðis“ teljast allar stofnana- og þjónustubyggingar, íþróttamannvirki, geymslur og annað húsnæði sem ekki fellur undir aðra liði greinarinnar.
Til flokks e. „Iðnaðar og annað atvinnuhúsnæði“ teljast hesthús og gripahús, hlöður, reiðskemmur og annað húsnæði sem tengist búfjárhaldi.
Lágmarksgjald skv. 1. mgr. skal aldrei vera hærra en sem nemur 15% af byggingarkostnaði fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann er hverju sinni skv. útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987, um vísitölu byggingarkostnaðar.
Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk sbr. 1. mgr. skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.
5. gr.
Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.
Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:
- Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
- Óeinangruð smáhús, minni en 10 fermetrar, fyrir stærri hús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir iðnaðar- og verslunarhús.
- Óupphitað Svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 m2 eða minni. 6. gr. Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds. Sveitarstjórn er heimilt skv. 6. gr. laga nr. 153/2006 að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður.
7. gr.
Áfangaskipti framkvæmda.
Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur bæjarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skal gatnagerðargjald hverju sinni greiðast samkvæmt þeirri samþykkt sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.
Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir á sérhverjum byggingaráfanga.
Verði heimiluð áfangaskipti falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar.
9. gr.
Afturköllun lóðarúthlutunar vegna vanskila eða dráttar á framkvæmdum.
Nú greiðir lóðarhafi ekki gatnagerðargjald á tilskildum tíma og er bæjarstjórn þá heimilt að undangenginni viðvörun að afturkalla byggingarleyfið og/eða lóðarúthlutun og skal kveðið svo á í úthlutunar- eða byggingarskilmálum.
Hafi teikningar af fyrirhuguðu húsi ekki borist byggingarnefnd til samþykktar innan 6 mánaða frá úthlutun lóðar, er heimilt að fella lóðarúthlutunina úr gildi og endurgreiðist þá gatnagerðargjaldið.
Byggingarfrestur er 12 mánuðir, þ.e. að lóð fellur aftur til sveitarsjóðs hafi framkvæmdir ekki verið hafnar innan þess tíma frá veitingu byggingarleyfis, nema leyfið hafi verið háð öðrum skilmálum um byggingarfrest.
10. gr.
Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur.
Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
11. gr.
Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:
- Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð.
- Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 30 daga ef lóð er afturkölluð skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 30 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt og verðbætt, án vaxta, miðað við breytingu á vísitölu byggingarkostnaðar frá því lóðarhafi greiddi gatnagerðargjaldið til endurgreiðsludags.
Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.
12. gr.
Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.
Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við sveitarfélagið fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir gjaldskrá um gatnagerðargjald í Bolungarvík frá 1. janúar 2012.
13. gr.
Byggingarleyfisgjald.
Innheimta skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir. Þó skal ekki innheimt byggingarleyfi fyrir byggingar sem eru 10 m2 eða minni, nema um viðbyggingu sé um að ræða.
Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útsetning húss og reglubundið eftirlit eftir því sem við á.
| Lágmarksgjald, byggingar allt að 60 m2 | 24.290 | kr |
| Lámarksgjald, byggingar stærri en 60 m2 | 48.698 | kr |
| Nýbyggingar | 298 | kr./m² |
| Sumarbústaðir | 1.118 | kr./m² |
14 gr.
Afgreiðslu og þjónustugjöld.
Afgreiðslu og þjónustugjöld samkvæmt eftirfarandi töflu:
Útgáfa stöðuleyfis, ásamt eftirliti og úttek byggingarfulltrúa, sem leiðir af veitingu stöðuleyfis fyrir hjólhýsi, gáma o.þ.h. og aðra afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Stöðuleyfi hjólhýsa 12.500 kr. Stöðuleyfi gáma á gámasvæði, 20 feta gámur 11.525 kr. Stöðuleyfi gáma á gámasvæði, 40 feta gámur 17.290 kr. Stöðuleyfi gáma, 20 feta gámur 23.050 kr. Stöðuleyfi gáma, 40 geta gámur 34.580 kr. Vottorð byggingastig húsa 19.455 kr. á stk. Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsingar 12.973 kr. á stk Afgreiðsla skráningartöflu 21.226 kr. á stk Framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda sem ekki eru háðar byggingarleyfi samkv. III. Kafla laga nr. 160/2010, lámarksgjald 58.955 kr.
Fyrir útgáfu stöðuleyfis vinnubúða á grundvalla kafla 4. 11 og stöðuleyfi samkvæmt kafla 2.6 í byggingarreglugerðar nr. 112/2012
| Stöðuleyfi fyrir vinnubúðir grunngjald | 37.733 | kr. |
| Önnur tímabundin stöðuleyfi, grunngjald | 11.792 | kr. |
15. gr.
Samþykkt og gildistaka.
Gatnagerðargjald byggir á lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatnagerðargjald nr. 543/1996.
Stofngjald vatnsveitu byggir á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
Holræsagjald byggir á 8. gr. a í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Byggingarleyfisgjald byggir á IX. kafla laga um mannvirki nr. 160/2010.
Samþykktin öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um gatnagerðargjöld í Bolungarvík nr. 043/1985 og gjaldskrá um gatnagerðargjald í Bolungarvíkurkaupstað frá 1. janúar 2013.
Samþykkt í Umhverfismálaráði Bolungarvíkur 2.apríl. 2013 og í bæjarstjórn Bolungarvíkur 15. maí 2013.
Bolungarvík 15.maí. 2013
Elías Jónatansson