Siðareglur kjörinna fulltrúa Bolungarvíkurkaupstaðar
1. gr.
Markmið siðareglna
Markmið þessara siðareglna er að skilgreina það hátterni og viðmót sem kjörnum fulltrúum ber að sýna við störf sín á vegum Bolungarvíkurkaupstaðar. Með kjörnum fulltrúum er átt við bæjarfulltrúa og aðra þá sem kjörnir eru til setu í nefndum og ráðum hjá Bolungarvíkurkaupstað.
2. gr.
Lög og reglur
Kjörnir fulltrúar skulu í störfum sínum fylgja lögum, reglum og samþykktum Bolungarvíkurkaupstaðar, sem og sannfæringu sinni. Þeim ber að gæta almannahagsmuna og hagsmuna sveitarfélagsins og hafa í heiðri grundvallaratriði góðrar stjórnsýslu og að við ákvarðanatöku ráði málefnaleg og lögmæt sjónarmið.
3. gr.
Ábyrgð og upplýsingar
Kjörnum fulltrúum ber að gegna störfum sínum af alúð og samviskusemi, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að axla ábyrgð á ákvörðunum sínum og rökstyðja þær. Kjörnir fulltrúar upplýsa eins og kostur er íbúa Bolungarvíkurkaupstaðar um störf sín og annað sem skiptir máli í rekstri sveitarfélagsins. Kjörnir fulltrúar skulu bregðast við beiðnum fjölmiðla um upplýsingar varðandi framkvæmd starfa þeirra af kostgæfni, heiðarleika og til fullnustu en þeir eiga ekki að veita neinar trúnaðarupplýsingar eða upplýsingar sem varða einkalíf annarra kjörinna fulltrúa eða þriðja aðila.
4. gr.
Umboð og háttvísi
Kjörnir fulltrúar skulu gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verkaskiptingu í stjórnkerfi Bolungarvíkurkaupstaðar. Kjörnir fulltrúar skulu sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa og starfsmanna Bolungarvíkurkaupstaðar virðingu. Þeir skulu koma fram af háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, viðskiptavinum og starfsmönnum sveitarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu.
5. gr.
Trúnaður
Kjörnir fulltrúar skulu gæta þagmælsku og trúnaðar um málefni sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og gæta ber trúnaðar um. Trúnaðarskylda helst þótt látið sé af starfi. Kjörnum fulltrúum ber jafnframt að virða trúnað um ummæli einstakra fundarmanna á lokuðum fundum í nefndum og ráðum Bolungarvíkurkaupstaðar.
6. gr.
Ábyrgð á fjármálum
Kjörnum fulltrúum ber að virða fjárhagsáætlun og grundvallarreglur um fjármálastjórn sem tryggja réttmæta og ábyrga meðferð á almannafé. Við störf sín skulu kjörnir fulltrúar ekki aðhafast neitt sem getur falið í sér misnotkun á almannafé. Kjörnir fulltrúar móta stefnu og eftirlit með rekstri sveitarfélagsins og skulu þeir gæta þess að rekstur sveitarfélagsins og framkvæmd stjórnsýslu á hverjum tíma sé eins og best verður á kosið.
7. gr,
Hagsmunaárekstrar
Kjörnir fulltrúar skulu ekki nýta sér stöðu sína í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra sem þeim eru tengdir, hvort sem ávinningur af slíku kemur fram strax eða síðar, þ.m.t. eftir að störfum fyrir Bolungarvíkurkaupstað lýkur. Kjörnir fulltrúar skulu forðast hagsmunaárekstra í störfum sínum. Um hæfi þeirra við meðferð einstakra mála fer eftir 20. gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Hafa ber að leiðarljósi að leita til ráðningastofnanna við ráðningu stjórnenda og einstaklinga í veigamikil störf innan Bolungarvíkurkaupstaðar í þeim tilgangi að tryggja hlutleysi kjörinna fulltrúa.
8. gr.
Gjafir og fríðindi
Kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir frá íbúum og viðskiptavinum Bolungarvíkurkaupstaðar eða þeim sem leita eftir verkefnum eða þjónustu sveitarfélagsins þannig að túlka megi sem persónulega þóknun fyrir ákvarðanir á vegum bæjarstjórnar eða nefnda/ráða.
9. gr.
Umræður og endurskoðun
Siðareglur þessar skulu teknar til umræðu í bæjarstjórn í upphafi hvers kjörtímabils og endurskoðaðar ef þörf þykir. Þær skulu síðan kynntar kjörnum fulltrúum í nefndum og ráðum.
10. gr.
Miðlun siðareglna til kjörinna fulltrúa, embættismanna og almennings
Kjörnum bæjarfulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi og staðfesti þann vilja með undirskrift sinni í upphafi hvers kjörtímabils. Bæjarskrifstofa Bolungarvíkurkaupstaðar skal kynna siðareglurnar fyrir starfsmönnum og íbúum Bolungarvíkurkaupstaðar.
Samþykkt í bæjarstjórn 19. nóvember 2015