Bolungarvíkurkaupstaður heldur íbúafund til að kynna framkvæmdir og lóðaframboð í nýju Lundahverfi í Bolungarvík.
Framkvæmdir við hverfið eru í fullum gangi og stutt er í að hægt verði að afhenda lóðir til byggingaraðila.
Á fundinum verður farið yfir stöðu framkvæmda, hvaða lóðir eru lausar ásamt því að farið verður yfir umsóknar- og framkvæmdaferli við dæmigert hús í hverfinu hvað varðar umsókn, gögn og kostnað við opinber gjöld.
Fundurinn verður haldin í Ráðhússalnum á efri hæð í Ráðhúsinu í Bolungarvík fimmtudaginn 15. janúar kl. 17:00.
