Fara í efni
06.01.2026 Fréttir

Jafnlaunavottun endurnýjuð til þriggja ára

Deildu

Jafnréttisstofa hefur staðfest endurnýjun jafnlaunavottunar hjá Bolungarvíkurkaupstað til ársins 2028. Jafnlaunavottunin er staðfesting þess að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins, ÍST85:2012. 

Tilgangur jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og miða að auknu launajafnrétti kynjanna. Vottunin staðfestir að hjá Bolungarvíkurkaupstað er unnið eftir ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun.