Halldór Karl gusumeistari býður upp á leidda gusu í sánunni í Bolungarvík.
Gusa er skipulögð gufulotusamvera undir handleiðslu svokallaðs Gusumeistara. Þátttakendur fara í þrjár stuttar gufulotur þar sem notaðar eru ilmolíur, þari, tónlist, blævængir og handklæðahreyfingar til að skapa róandi og endurnærandi stemningu. Á milli lota er hvatt til kælingar, t.d. í hafinu eða í köldum potti. Hugmyndin að gusunni byggir á norrænni gufumenningu og sameinar náttúruupplifun, slökun og leiðsögn í núvitund.
Skráning í gusuna hjá Dóra kokk er á blaði í andyrri sundlaugarinnar og hefst sunnudaginn 1. febrúar.
Heilsubærinn í Bolungarvík stendur fyrir þessum viðburði

