Yin yoga er mjúkur og rólegur tími sem samanstendur af sitjandi og liggjandi stöðum. Hverri stöðu er haldið í 3-10 mínútur, svo að bandvefurinn nái að gefa eftir.
Markmið tímans er að iðkendur hægi á sér, gefi sér tíma til að hlúa að sér, auki liðleika og létti á spennu í líkamanum.
Gott er ef iðkendur hafa með sér æfingadýnu, teppi, púða og æfingakubba.
Heilsubærinn í Bolungarvík stendur fyrir þessum viðburði

