Félagsheimili Bolungarvíkur
Félagsheimili Bolungarvíkur er sannkölluð perla Vestfjarða.
Félagsheimilið
Sími 864-1515 - Arnar Stéfánsson, umsjónarmaður
addibaddi63@hotmail.com
Bókunardagatal Gjaldskrá Félagsheimili Bolungarvík
- Brúðkaupsveislur
- Ráðstefnur
- Fundir
- Fermingarveislur
- Tónleikar
- Leiksýningar
- Skemmtanir
- Dansleikir
- Fjölskylduviðburðir
- Ættarmót
- Jólahlaðborð
- Skírnarveislur
Félagsheimli Bolungarvíkur (YouTube.com)
Bolungarvíkur var vígt 14. apríl 1952 og eftir gagngerar endurbætur og viðbyggingu var það enduropnað 14. apríl 2011.
Félagsheimilið í Bolungarvík er búið öllum nútímaþægindum og kröfum um aðgengi fyrir alla. Allt aðgengi fyrir hjólastóla er til fyrirmyndar í öllu húsinu og engin hindrun að ferðast um húsið. Lyfta er á milli allra hæða húsins.
Stór 200 manna aðalsalur er í miðrými hússins og er þar stórt og mikið svið sem hentar vel til tónleikahalds og leiksýninga.
Fullkomið hljóðkerfi er í húsinu, 24 rása mixer og hljóðnemar auk sviðshljóðnema sem t.d. henta vel á leiksýningum.
Ljósakerfi hússins er mjög flott og einfalt í notkun.
Á efri hæð er 40-50 manna salur sem hentar vel til smærri viðburða.
Skjávarpar eru bæði í aðalsal sem og minni sal.
Tveir barir eru í húsinu, einn í hliðarsal upp af aðalsal og hinn í anddyri við aðalsal.
Anddyri hússins er mjög stórt og er vel til þess fallið að bjóða uppá fordrykk og fyrir standandi veislur. Anddyri hússins tekur auðveldlega 100-150 manns í móttöku.