Náttúrugripasafn Bolungarvíkur
Natural History Museum of Bolungarvík
Vitastíg 3, 415 Bolungarvík
Sumar 2022 Safnið verður lokað í sumar.
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er lokað í sumar 2022 vegna endurskipulagningar.
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur var formlega opnað í maí 1998, en safnið er það fyrsta sinnar tegundar á Vestfjörðum.
Náttúrugripasafnið er tileinkað Steini Emilsyni jarðfræðingi, sem lengi var skólastjóri í Bolungarvík. Steinasafn hans er uppistaðan í steinasýningu safnsins.
Spendýrum og fuglum eru gerð góð skil. Þegar inn er komið er gestum heilsað af blöðruselsbrimli og hvítabjörninn er ekki langt undan, umkringdur selum, refum og minkum.
Við minnum á að hægt er að kaupa sameiginlegan aðgang að náttúrugripasafninu og sjóminjasafninu Ósvör.