• Þrettándagleði í Bolungarvík 2019, mynd Haukur Sigurðsson

Þrettándinn

Þrettándinn er haldinn til skiptis í Bolungarvík og á Ísafirði. 

Á þrettándagleðina í Bolungarvík koma álfar og kóngafólk, prinsar og prinsessur, stallari, biskup og skratti, bændafólk, álfameyjar, ljósálfar og svartálfar, jólasveinar, púkar og Grýlu-börn og svo auðvitað Grýla sjálf með Leppalúða sinn.

Dans er stiginn og söngvar sungnir við hljóðfæraspil og þrettándabrennu svo sem vera ber á þrettándanum.

Löng hefð er fyrir því að þrettándagleðin endi á flugeldasýningu sem Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík stendur fyrir.

Þrettándinn er haldinn í Bolungarvík þegar ártalið er oddatala.