Jafnlaunastefna Bolungarvíkurkaupstaðar

Bolungarvíkurkaupstaður leggur áherslu á að vera vinnustaður þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum og að greidd skuli jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni, uppruna eða öðrum aðgreinandi þáttum.

Meginmarkmið jafnlaunastefnu Bolungarvíkurkaupstaðar er að allar launaákvarðanir skulu vera gegnsæjar, málefnalegar, skjalfestar og rekjanlegar. Jafnlaunastefnan tekur til allra starfsmanna sveitarfélagsins og byggir á ákvæðum jafnréttislaga nr. 150/2020.

Bolungarvíkurkaupstaður hefur þegar innleitt og vottað jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur ÍST 85:2012 staðalsins og er skuldbundinn til að viðhalda því og bæta stöðugt.

Til þess að tryggja áframhaldandi árangur mun sveitarfélagið:

  • Viðhalda og uppfæra vottað jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur staðalsins.
  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem eru í gildi á hverjum tíma.
  • Gera innri úttektir og framkvæma launagreiningu árlega þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf í þeim tilgangi að kanna hvort kynbundinn launamunur sé til staðar.
  • Bregðast við óútskýrðum launamuni með markvissum umbótum og eftirliti.
  • Halda árlega stjórnendarýni á jafnlaunakerfinu.
  • Kynna jafnlaunastefnuna fyrir öllu starfsfólki og hafa hana aðgengilega á vefsíðu sveitarfélagsins, www.bolungarvik.is.

Jafnlaunastefna Bolungarvíkurkaupstaðar var samþykkt á 817. fundi bæjarstjórnar Bolungarvíkur þann 9. september 2025.