Aðstoðarmatráður óskast
Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. Um er að ræða 75% stöðu frá kl. 10:00-16:00 alla virka daga.
Þekking og reynsla af eldhússtörfum og matreiðslu æskileg. Starfar í eldhúsi við matargerð og þrif. Vinnur sjálfstætt eftir fyrirmælum matráðs við bakstur og matargerð (heitur matur).
Innleiðing á verkefninu Heilsueflandi leikskóli er í fullum gangi og því er lögð áhersla á hollustu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum VSB. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Reynsla af matseld æskileg
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Áhugi á næringu barna og velferð þeirra
- Stundvísi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.
Umsóknafrestur er til 29. október 2020.
Allar frekari upplýsingar veita Ragnheiður og Guðbjörg í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.
Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.