Laus störf
Deildarstjórar við leikskóla
- Önnur staðan er á yngstu deild skólans, Gili þar sem nemendur eru 1-2ja ára,
- hin staðan er afleysingastaða í 1 ár frá 1. september 2021 og er á Grundum deild með nemendur 3-4ra ára.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu skilyrði
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Stundvísi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Störfin henta jafnt körlum sem konum. Umsækendur þurfa að geta hafið störf í ágúst og september.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.
Umsóknafrestur er til 25. maí 2021.
Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður eða Guðbjörg í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.
Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Innleiðing á verkefninu Heilsueflandi leikskóli er í fullum gangi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ.
Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is