Laus störf
  • Glaðheimar

Deildarstjóri á Glaðheima

4.5.2017

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. 

Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er einnig lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. september 2017. 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til 31. maí 2017.

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður í síma 456-7264 eða netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er bolungarvik.is/leikskoli.