Laus störf
  • Grunnskóli Bolungarvíkur

Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir lausar stöður kennara

27.3.2020

Grunnskóli BolungarvíkurÍ Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 130 nemendur og 30 starfsmenn. 

Starfshættir grunnskólans eru í sífelldri þróun. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur ávallt mið af þroska og hæfni nemenda. 

Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsfólks og foreldra.

Eftirfarandi kennarastöður eru lausar við skólann næsta skólaár frá 1. ágúst 2020.

  • 100% staða á unglingastigi; stærðfræði og samfélagsfræði (umsjón)
  • 100% staða á mið - og unglingastigi; íþróttir og tungumál
  • 100% staða á miðstigi (umsjón)
  • 50% staða í listgreinakennslu
  • 50% staða í kennslu hönnunar og smíði

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð færni í íslensku máli jafnt í ræðu og riti
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hreint sakarvottorð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands sveitarfélaga. 

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Móttaka umsókna verður staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249, netfang: halldoras@bolungarvik.is.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin.

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2020.

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2020.