Laus störf
  • Ihss

Innheimtufulltrúi

18.9.2018

Um er að ræða fullt starf á starfsstöð Innheimtustofnunar sveitarfélaga á Ísafirði. Stofnunin hefur það hlutverk að innheimta meðlög skv. lögum nr. 54/1971

Óskað er eftir einstaklingi sem á gott með:
- samskipti við annað fólk
- þjónustu við viðskiptavini
- tölvur og tækni
- að mæta á réttum tíma
- að lesa og rita texta á íslensku
- samskipti á ensku
- sveigjanleika
- að læra inná nýja hluti og ferla

Starfið felur í sér:
- Símsvörun, þjónustu og afgreiðslu erinda frá viðskiptavinum.
- Skráningu ýmissa upplýsinga, listavinnslu, eftirfylgni með innheimtumálum og samningum
- Önnur tilfallandi verkefni á starfsstöðinni

Vinnustaðurinn er reyklaus, vinnuandi er góður og mikið lagt uppúr því að vinnan sé bæði skemmtileg og árangursrík.

Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. 

Umsóknir skulu berast á tölvupósti á netfangið bragi@medlag.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en þann 1. desember nk.