Laus störf

Leikskólakennari/leiðbeinandi

2.12.2025

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf.

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli þar sem eru um 35 börn. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla að vinna með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, samviskusemi og jákvæðni
  • Ábyrgð og stundvísi

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar
  • Frítt fæði – morgunmatur, hádegismatur og kaffitími
  • Afsláttur af leikskólagjöldum

Umsóknarfrestur til og með 1. Janúar.

Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf. Umsókn skal senda á netfangið gladheimar@bolungarvik.is, einnig er hægt að sækja um á staðnum.

Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ og/eða hlutaðeigandi stéttarfélag.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Frekari upplýsingar um starfið er hægt að fá í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið gladheimar@bolungarvik.is.