Laus störf
  • Leikskoli_utbod

Leikskólakennari óskast

6.1.2021

Laus er til umsóknar staða við leikskólann Glaðheima. Um er að ræða 100% stöðu á Gili, deild með yngstu börnum. 

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Verið er að innleiða verkefnið Heilsueflandi leikskóli. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og VSB. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og reglusemi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans að Hlíðarstræti 16 í Bolungarvík eða í tölvupósti á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til og með 18. janúar 2021.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er gladheimar.leikskolinn.is.