Leikskólastjóri – Leikskólinn Glaðheimar
Viltu leiða öflugan leikskóla í einstöku umhverfi þar sem náttúran og heilsuefling eru í forgrunni? Leikskólinn Glaðheimar auglýsir eftir metnaðarfullum og skapandi leiðtoga með skýra framtíðarsýn í skólamálum.
Helstu verkefni
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
- Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu Bolungarvíkur, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla
- Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar
- Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
- Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins í Bolungarvík
Hæfnikröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar sem nýtist í starfi er kostur
- Leiðtoga- og stjórnunarhæfni, reynsla af stjórnun er æskileg.
- Kennslureynsla á leikskólastigi
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun er kostur
- Metnaður, hugmyndaauðgi og skipulagshæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Hreint sakavottorð
Um Glaðheima
Leikskólinn er í nýlegu og endurbættu húsnæði með um 40 nemendur. Áhersla er á lífsleikni, hreyfingu og útivist. Skólinn starfar í nánu samstarfi við grunnskólann og sundlaug Bolungarvíkur. Kjörorð skólans eru virðing, ábyrgð og traust.
Bolungarvík er hlýlegt sveitarfélag á Vestfjörðum. Bærinn býður upp á einstaka náttúrufegurð, sterkt samfélag og fjölbreytta þjónustu.
Í Bolungarvík er lögð áhersla á heilsueflingu, menntun og velferð íbúa. Þar er að finna leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og öflugt félagslíf.
Nánari upplýsingar
Þórdís Sif Arnarsdóttir – thordis@hagvangur.is