Leikskólinn Glaðheimar auglýsir eftir deildarstjóra og leikskólakennara/leiðeinanda
Laust er til umsóknar starf leikskólakennara /leiðbeinanda í 80 - 100% starf inn á deild.
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 13.ágúst eða eftir samkomulagi.
Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli þar sem eru um 40 börn. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu.
Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunnar.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Að vinna að menntun og velferð barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni í íslensku máli er skilyrði
- Frumkvæði, samviskusemi og jákvæðni
- Ábyrgð og stundvísi
Umsóknarfrestur til 24.apríl 2025.
Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundið starf að ræða til eins árs.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf. Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ og/eða hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsókn skal senda á netfangið salomeh@bolungarvik.is. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Upplýsingar um starfið veitir Salóme Halldórsdóttir leikskólastjóri í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið salomeh@bolungarvik.is