Leikskólinn Glaðheimar - Leikskólakennari/starfsmaður
Leikskólinn Glaðheimar Bolungarvík auglýsir eftir leikskólakennara/starfsmanni í 100% starf inn á deild.
Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu.
Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunar.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í lifandi starfsumhverfi, viltu vera með?
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu eða menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni í íslensku máli er skilyrði
- Frumkvæði, samviskusemi og jákvæðni
- Ábyrgð og stundvísi
Ráðið er í stöðuna eftir samkomulagi
Umsóknarfrestur til 27. janúar 2025.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ og/eða hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsókn skal senda á netfangið salomeh@bolungarvik.is. Öllum umsóknum verður svarað. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Upplýsingar um starfið veitir Salóme Halldórsdóttir leikskólastjóri í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið salomeh@bolungarvik.is
Heimasíðu leikskólans má finna hér .