Laus störf
  • Grunnskóli Bolungarvíkur

Störf við grunnskólann

8.3.2018

Við skólann starfar samheldinn og öflugur hópur sem óskar eftir vinnufélögum. 

Eftirtalin störf eru laus til umsóknar við Grunnskóla Bolungarvíkur fyrir skólaárið 2018-2019. 

  • Umsjónarkennsla á yngstastigi 80-100% starf
  • Umsjónarkennsla á miðstigi 80–100% starf
  • Umsjónarkennsla og enska á unglingastigi 100% starf
  • Smíðakennsla 50% starf
  • Handmennt 50% starf
  • Tónmennt 50% starf  

Menntunar og hæfnikröfur 

  • Kennsluréttindi í grunnskóla
  • Áhugi á að starfa í öflugu lærdómssamfélagi
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og færni í samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi  og samviskusemi 

Launakjör samkvæmt kjarasamningi KÍ.

Umsóknum skal skilað til Stefaníu Ásmundsdóttur, skólastjóra, á netfangið stefania@bolungarvik.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi ásamt sakavottorði. 

Umsóknarfrestur til og með 31. mars 2018. 

Nánari upplýsingar veitir Stefanía í síma 456-7249 eða í gegnum tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.