Laus störf

Sumarstarf - Starfsmaður í stuðningsþjónustu

5.6.2024

Félagsþjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar óskar eftir starfsmanni í stuðningsþjónustu í sumar

Óskað er eftir starfsmanni í afleysingu í stuðningsþjónustu í sumar frá 10. júní þar til út ágúst í 80% starfshlutfall. Um er að ræða aðstoð við heimilishald, s.s. þrif og fleira inná heimilum eldra fólks og fólk með skerta getu. Fjölbreytt og áhugavert starf.

Óskað er eftir starfsmanni sem ábyrgur og fær í mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í síma 450-7000 eða í netfangið gudnyhildur@bolungarvik.is og Guðrún Ármannsdóttir í síma 690-7003