• Sjómanndagurinn í Bolungarvík

Sjómannadagurinn Bolungarvík

Sjómannadagur Bolungarvíkur á sér langa og merka sögu og er einn af stóru menningarviðburðunum í bænum ár hvert enda er Bolungarvík ein elsta verstöð landsins.

Img_7144

Kappróður á sjómannadag

Sjómannadagurinn 2023 er sunnudagurinn 4. júní. Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert, nema ef hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir.

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti hérlendis á Ísafirði og í Reykjavík hinn 6. júní árið 1938 sem var annar dagur hvítasunnu. 

Sjómannadagur Bolungarvíkur var fyrst haldinn hátíðlegur 29. maí 1939 sem einnig var annar dagur hvítasunnu. 

Reglan sú að sjómannadagurinn er fyrsta sunnudag í júní nema hvítasunnu beri upp á þann dag en þá er sjómannadagurinn viku síðar. 

Sjómannadagurinn í Bolungarvík - 2015

Sirrý ÍS 36

Sjómannadagurinn í Bolungarvík