Sundlaug Bolungarvíkur
Musteri vatns og vellíðunar #musterivv
OpiðVirkir dagar 06:00-21:00
Helgar 10:00-18:00
Sundlaug Bolungarvíkur er hluti af Íþróttamiðstöðinni Árbæ.
Afslættir
- Ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá 50% afslátt af einstökum miðum í sund og árskorti Heilsubæjarins.
- Útilegukortið gildir fyrir gistingu á tjaldsvæði.
- 10% FÍB afsláttur er af gistingu á tjaldsvæði.
Laugin er innilaug, 8 x 16,66 m., á útisvæði eru tveir heitir pottar, annar er 41°C heitur og hinn 39°C, með vatnsnuddi. Auk þess er á útisvæði upphituð vaðlaug, vatnsrennibraut og kaldur pottur.
- Tíu ára börn mega fara í sund án fylgdar, miðað er við árið sem þau verða tíu ára.
- Níu ára og yngri börnum er óheimill aðgangur að sundsstöðum nema í fylgd.
Einnig er í boði sauna með góðri hvíldaraðstöðu. Tjaldsvæðið er við sundlaugina og skammt undan er hinn vinsæli ærslabelgur.
Þjónusta á almennum frídögum
| Dagur | Þjónusta | 
|---|---|
| Nýársdagur | Lokað | 
| Skírdagur | Kl. 10:00-18:00 | 
| Föstudagurinn langi | Kl. 10:00-18:00 | 
| Páskadagur | Kl. 10:00-18:00 | 
| Annar í páskum | Kl. 10:00-18:00 | 
| Sumardagurinn fyrsti | Lokað | 
| 1. maí | Lokað | 
| Uppstigningardagur | Lokað | 
| Hvítasunnudagur | Kl. 10:00-18:00 | 
| Annar í hvítasunnu | Kl. 10:00-18:00 | 
| 17. júní | Lokað | 
| Aðfangadagur jóla | Kl. 08:00-12:00 | 
| Jóladagur | Lokað | 
| Annar í jólum | Kl. 10:00-18:00 | 
| Gamlársdagur | Kl. 10:00-12:00 | 
Þann 30. janúar 1977 var Sundlaug Bolungarvíkur opnuð.

