Viðburðir

  • 17. júní
  • 17. júní 2017, 10:00 - 16:00, Bolungarvík

17. júní Bolungarvík

Bolungarvíkurkaupstaður býður upp á hátíðardagskrá í tilefni af þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga 17. júní 2017.

Dagurinn hefst á víðavangshlaupi frá Ráðhúsinu. Skráning fer fram á staðnum og hefst hlaupið að henni lokinni. Hlaupið er opið fyrir alla aldurshópa en vegalengdir eru við hæfi hvers hóps.

Fleytukeppni verður í Hólsá þar sem keppendur mæta með fleytur sínar. Fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og skal hún að lágmarki vera 20 cm löng. 

Gegnið verður í skrúðgöngu frá Ráðhúsinu að Félagsheimilinu þar sem hátíðardagskrá hefst. Fjallkonan kemur til okkar, við syngjum þjóðsönginn og nýstúdent flytur hátíðarræðu. Við fáum að heyra ljúfa tónlist og ljúkum deginum með vöfflukaffi og fjölskyldudansleik. 

Lyftum okkur upp í Víkinni fögru á þjóðhátíðardaginn 17. júní. 

10:00 Víðavangshlaup
11:00 Fleytukeppni í Hólsá
14:00 Skrúðganga
14:10 Hátíðardagskrá við félagsheimilið
15:00 Vöfflukaffi
15:00 Fjölskyldudansleikur með hljómsveitinni Icebreaker

Gleðilega þjóðhátíð!