Viðburðir

  • Fanar_1686743477628
  • 17. júní 2023, 10:00 - 15:00

17. júní Bolungarvík

Þjóðleg dagskrá

Bolungarvíkurkaupstaður býður upp á hátíðardagskrá í tilefni af þjóðhátíðardegi okkar- 17. júní 2023

Dagurinn hefst með víðavangshlaupi frá Ráðhúsinu. Skráning fer fram á staðnum og er hlaupið opið öllum aldurshópnum.

Fleytukeppni verður í Hólsá þar sem keppendur mæta með sínar fleytur. Fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og hún skal vera að lágmarki 20 cm löng.

Haldið verður upp á 17. júní á útisviðinu við félagsheimilið.

Gleðilega þjóðhátíð!

  • 10:00  Víðavangshlaup
  • 11:00  Fleytukeppni í Hólsá
  • 12:20  Skrúðganga frá Ráðhúsi
  • 12:30  Hátíðardagskrá við félagsheimilið 
  • 13.00  Púttmót við félagsheimilið