Viðburðir

  • Á eigin skinni
  • 6. maí 2019, 20:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 3.000 kr.

Á eigin skinni!

Sölvi Tryggvason gaf nýverið út bókina: Á Eigin Skinni, sem er afrakstur áratugsvegferðar hans um allt sem snýr að heilsu.

Eftir að hafa sjálfur misst heilsuna neyddist Sölvi til að gerast sérfræðingur í heilsu og hefur á undanförnum árum lært af framúrskarandi fólki um allan heim, auk þess að gera endalaust af tilraunum á sjálfum sér þegar kemur að kælingu, föstum, næringu, hreyfingu, bætiefnum og fleiru og fleiru.

Á fyrirlestrinum verður farið yfir lykilatriði þegar kemur að næringu, hreyfingu, hugleiðslu og öndun, föstum og leiðir til að bæta svefn, heilastarfsemi og draga úr bólgum og ójafnvægi í líkamskerfinu.

Mánudagur, 6. maí 2019 kl. 20:00.

Aðgangseyrir kr. 3.000.