Viðburðir

  • Skjaldarmerki Íslands
  • 25. september 2021, Félagsheimilið Bolungarvík

Alþingiskosningar 2021

Kosningar til Alþings fara fram laugardaginn 25. september 2021.

Kjósendur á kjörskrá Bolungarvíkur geta kosið í Félagsheimili Bolungarvíkur á kjördag.

Kjörstaður verður opin á kjördag í Félagsheimili Bolungarvíkur frá kl. 10:00 til kl. 21:00 laugardaginn 25. september 2021.

Utankjörfundur hófst 13. ágúst 2021.

Innanlands fer kosning utan kjörfundar fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á sérstökum kjörstað í umdæminu.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 25. september 2021 fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis.

Í ljósi þess ástands sem nú ríkir í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar geta óhjákvæmilega komið upp tilvik þar sem aðgengi kjósenda að kjörstöðum erlendis er takmarkað af sóttvarnaástæðum. Kjósendum er bent á að hafa samband við sendiskrifstofur varðandi fyrirkomulag á hverjum stað.

Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefsetrinu: www.kosning.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Vegna heimsfaraldursins er brýnt að gera slíkar ráðstafanir tímanlega.