Árshátíð grunnskólans 2023
Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur fer fram fimmtudaginn 16. febrúar 2023 í Félagsheimili Bolungarvíkur.
Eins og fyrri ár verður árshátíðin öllum opin, og verða tvær sýningar. Fyrri sýningin hefst kl. 17.00 og sú seinni kl. 20.00, húsið opnar 30 mínútum fyrir sýningu. Á báðum sýningum sýna allir árgangar leik- og söngatriði, unglingastigið sýnir leikritið Ávaxtakörfuna. Selt verður inn við inngangin, miðaverð er 1.000 krónur. Hægt verður að greiða með korti í anddyri og pening innar í rýminu. Ekkert hlé verður á sýningunni og engin veitingasala.
ALLIR eru sko velkomnir!